{"id":1407,"date":"2017-05-19T07:32:43","date_gmt":"2017-05-19T07:32:43","guid":{"rendered":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/?p=1407"},"modified":"2018-05-09T07:22:29","modified_gmt":"2018-05-09T07:22:29","slug":"hofdinginn-mar-sigurdsson-er-allur","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/2017\/05\/19\/hofdinginn-mar-sigurdsson-er-allur\/","title":{"rendered":"H\u00f6f\u00f0inginn M\u00e1r Sigur\u00f0sson er allur&#8230;"},"content":{"rendered":"<div id=\"attachment_1408\" style=\"width: 1964px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img aria-describedby=\"caption-attachment-1408\" loading=\"lazy\" class=\"size-full wp-image-1408\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/IMG_1471-B.jpg\" alt=\"\" width=\"1954\" height=\"1466\" srcset=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/IMG_1471-B.jpg 1954w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/IMG_1471-B-300x225.jpg 300w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/IMG_1471-B-768x576.jpg 768w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/IMG_1471-B-1024x768.jpg 1024w\" sizes=\"(max-width: 1954px) 100vw, 1954px\" \/><p id=\"caption-attachment-1408\" class=\"wp-caption-text\">M\u00e1r Sigur\u00f0sson \u00e1samt pistilsh\u00f6fundi \u00e1 g\u00f3\u00f0ri stund um mi\u00f0n\u00e6tti 30. j\u00fal\u00ed 2005.<\/p><\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fa er hann M\u00e1r vinur minn allur. Hann l\u00e9st 3ja ma\u00ed s.l.<\/p>\n<p>M\u00e1sa hef \u00e9g \u00feekkt \u00ed sex \u00e1ratugi og h\u00e1lfan betur.\u00a0 Kannski r\u00famlega sj\u00f6, \u00fev\u00ed M\u00e1si var tveim d\u00f6gum eldri en \u00e9g og haf\u00f0i hann \u00fea\u00f0 eitt sinn \u00e1 or\u00f0i a\u00f0 hann hafi s\u00e9\u00f0 mig koma h\u00e1grenjandi \u00ed heiminn \u00e1 f\u00e6\u00f0ingadeildinni og hlegi\u00f0 miki\u00f0.\u00a0 \u201e\u00de\u00e1 sussa\u00f0i \u00e9g \u00e1 \u00feig\u201c b\u00e6tti M\u00e1r vi\u00f0 og glotti. Reyndar f\u00e6ddist hann \u00e1 Geysi 28. apr\u00edl 1945, svo \u00feetta var p\u00ednul\u00edti\u00f0 f\u00e6rt \u00ed st\u00edlinn.<\/p>\n<p>&#8211;<\/p>\n<p>Eiginlega get \u00e9g skipt kynnum m\u00ednum af M\u00e1sa \u00ed tvo kafla. Kannski \u00ferj\u00e1.<\/p>\n<div id=\"attachment_1421\" style=\"width: 156px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img aria-describedby=\"caption-attachment-1421\" loading=\"lazy\" class=\"size-thumbnail wp-image-1421\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/gusti-hestamadur-i-haukadal-150x150.jpg\" alt=\"\" width=\"150\" height=\"150\" \/><p id=\"caption-attachment-1421\" class=\"wp-caption-text\">G\u00fasti litli me\u00f0 beisli um \u00f6xl \u00ed\u00a0Haukadal um \u00fea\u00f0 leyti sem vi\u00f0skiptin me\u00f0 bogann f\u00f3ru fram.<\/p><\/div>\n<p>\u00c1 \u00e6sku\u00e1runum var \u00e9g i\u00f0ulega \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0, einum af \u00ferem kofum, \u00fear sem n\u00fa er Haukadalssk\u00f3gur.\u00a0 \u00dear l\u00e6r\u00f0i \u00e9g sundt\u00f6kin \u00ed moldarsundlaug og kynntist \u00edslenskri n\u00e1tt\u00faru og mannf\u00f3lki eins og \u00fea\u00f0 gerist best. L\u00e6r\u00f0i a\u00f0 sitja hest, skj\u00f3ta \u00far byssu og aka b\u00edl strax \u00feegar nefi\u00f0 n\u00e1\u00f0i upp yfir st\u00fdri\u00f0. \u00c1 t\u00faninu vi\u00f0 kirkjuna stunda\u00f0i Sigur\u00f0ur Greipsson heyskap me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki og \u00fear voru b\u00f6rn hans a\u00f0 leik. \u00dear \u00e1 me\u00f0al M\u00e1si. Ein af m\u00ednum fyrstu minningum \u00fea\u00f0an var \u00feegar \u00e9g s\u00fdndi M\u00e1sa boga sem \u00e9g haf\u00f0i sm\u00ed\u00f0a\u00f0 \u00far bambus. \u00a0M\u00e1si girntist gripinn og f\u00e9kk t\u00fakall hj\u00e1 einhverjum \u00feeirra sem eldri voru og greiddi m\u00e9r. Boginn skipti um eigendur og guttinn \u00e9g sn\u00e9ri hr\u00f3\u00f0ugur heim \u00ed kofann me\u00f0 t\u00fakallinn.\u00a0 \u201eHvernig gastu eiginlega gert \u00feetta?\u201c\u00a0\u00a0 var \u00e9g spur\u00f0ur. S\u00ed\u00f0an var \u00e9g sendur me\u00f0 t\u00fakallinn til M\u00e1sa \u00fear sem hann var a\u00f0 \u00e6fa sig \u00ed bogfimi \u00e1 t\u00faninu.\u00a0 M\u00e1si h\u00e9lt t\u00fakallinum og boganum, en atbur\u00f0urinn greyptist \u00ed minninguna. \u00a0\u00c9g skamma\u00f0ist m\u00edn d\u00e1l\u00edti\u00f0. \u00deessi kynni okkar M\u00e1sa rifju\u00f0um vi\u00f0 stundum upp og haf\u00f0i M\u00e1si gaman af. Hann haf\u00f0i snemma vit \u00e1 vi\u00f0skiptum.<\/p>\n<p>\u00c1 unglings\u00e1runum starfa\u00f0i \u00e9g um stund vi\u00f0 sk\u00f3gr\u00e6kt, me\u00f0al annars vi\u00f0 grisjun og trj\u00e1pl\u00f6ntun \u00ed Haukadal. M\u00e1sa hitti \u00e9g \u00fe\u00e1 af og til, en Greipur br\u00f3\u00f0ir hans starfa\u00f0i me\u00f0 okkur sem verkstj\u00f3ri.\u00a0 \u00de\u00e1 voru menn uppteknir vi\u00f0 vinnu langt fram \u00e1 kv\u00f6ld og l\u00edtill t\u00edmi fyrir anna\u00f0.<\/p>\n<div id=\"attachment_1420\" style=\"width: 206px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img aria-describedby=\"caption-attachment-1420\" loading=\"lazy\" class=\"size-medium wp-image-1420\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/Mar-Sigurdsson-200x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"300\" \/><p id=\"caption-attachment-1420\" class=\"wp-caption-text\">M\u00e1r \u00e1 mi\u00f0jum aldri.<\/p><\/div>\n<p>L\u00ed\u00f0ur svo t\u00edminn. M\u00e1sa hitti \u00e9g anna\u00f0 slagi\u00f0, og eitt sinn er vi\u00f0 vorum a\u00f0 n\u00e1lgast mi\u00f0jan aldur vildi hann \u00f3lmur selja m\u00e9r landskika. Einhver formlegheit komu \u00fe\u00f3 \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed yr\u00f0i, en eitt sinn sem oftar \u00feegar vi\u00f0\u00a0\u00e1\u00f0um\u00a0\u00e1\u00a0Geysi s\u00e1 M\u00e1si okkur hj\u00f3nin \u00fear sem vi\u00f0 vorum a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir kaffi og me\u00f0l\u00e6ti. \u00a0\u00deetta var r\u00e9tt fyrir aldam\u00f3tin. &#8220;Komdu sn\u00f6ggvast G\u00fasti&#8221; kalla\u00f0i M\u00e1si og \u00e9g fylgdi honum \u00fat \u00e1 hla\u00f0. Upp \u00ed b\u00edlinn skipa\u00f0i M\u00e1si og \u00fe\u00fdddi ekkert a\u00f0 malda \u00ed m\u00f3inn. M\u00e1si bruna\u00f0i s\u00ed\u00f0an a\u00f0 Tunguflj\u00f3ti, ni\u00f0ur me\u00f0 flugbrautinni, felldi ni\u00f0ur gir\u00f0ingu og \u00f3k \u00f3hika\u00f0 yfir \u00f3sl\u00e9tt og \u00fe\u00fdfi\u00f0 land. Hvernig hann komst \u00e1fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 festa b\u00edlinn er m\u00e9r eiginlega \u00f3skiljanlegt enn.\u00a0 \u201eHvernig l\u00edst \u00fe\u00e9r \u00e1? Er \u00feetta ekki gl\u00e6silegt?\u00a0 \u00deetta \u00e1ttu a\u00f0 kaupa\u201c.\u00a0 V\u00edst var landi\u00f0 fallegt, en gr\u00f3\u00f0ur var l\u00edti\u00f0 annar en berjalyng. Ekkert skipulag l\u00e1 fyrir.\u00a0\u00a0 \u00c9g f\u00e9ll \u00fe\u00f3 strax fyrir \u00fev\u00ed. &#8220;G\u00e6ti \u00e9g fengi\u00f0 tvo hektara&#8221;, spur\u00f0i \u00e9g af h\u00f3gv\u00e6r\u00f0.\u00a0 Jamm, en ekki me\u00f0fram \u00e1nni. Vi\u00f0 sn\u00e9rum svo aftur s\u00f6mu lei\u00f0 upp \u00ed h\u00f3tel \u00fear sem fr\u00fain bei\u00f0 me\u00f0 tvo kalda kaffibolla og \u00e1hyggjufullur \u00fej\u00f3nninn skildi ekkert \u00ed \u00fev\u00ed hva\u00f0 haf\u00f0i gerst.\u00a0 \u00c9g haf\u00f0i bara s\u00edsona gufa\u00f0 upp e\u00f0a or\u00f0i\u00f0 uppnuminn. Alveg sporlaust.\u00a0N\u00e6stu daga var\u00a0 hugsa\u00f0 st\u00edft og miki\u00f0 sp\u00e1\u00f0. \u00c9g smala\u00f0i saman f\u00e1einum \u00far fj\u00f6lskyldunni og tveim betur og vi\u00f0 festum kaup \u00e1 \u00f6llu \u00feessu fallega \u00f3skipulag\u00f0a landi. Nokkru s\u00ed\u00f0ar keyptum vi\u00f0 nokkra vi\u00f0b\u00f3t af \u00f6\u00f0lingnum Bjarna Sigur\u00f0ssyni harmonikkuleikara me\u00f0 meiru, br\u00f3\u00f0ur M\u00e1s. Alls um 22 hektarar \u00e1 b\u00f6kkum Almennings\u00e1r sem deildust \u00e1 6 fj\u00f6lskyldur. Kannski var \u00feetta framhald af vi\u00f0skiptunum me\u00f0 bogann? \u00a0\u00deetta var\u00f0 upphafi\u00f0 a\u00f0 miklu \u00e6vint\u00fdri. M\u00e1r var n\u00fa or\u00f0inn n\u00e1granni minn og gagnkv\u00e6mt.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" class=\"alignleft size-thumbnail wp-image-1419\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/Mar-Sigurdsson-2-150x150.jpg\" alt=\"\" width=\"150\" height=\"150\" srcset=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/Mar-Sigurdsson-2-150x150.jpg 150w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/Mar-Sigurdsson-2-50x50.jpg 50w\" sizes=\"(max-width: 150px) 100vw, 150px\" \/>N\u00fa \u00feegar vi\u00f0 M\u00e1si vorum or\u00f0nir n\u00e1grannar ur\u00f0u samskiptin meiri. Fyrstu tv\u00f6 \u00e1rin f\u00f3ru \u00ed a\u00f0 gera deilskipulag og f\u00e1 \u00fea\u00f0 sam\u00feykkt, leggja vegi, gir\u00f0a, og anna\u00f0 st\u00fass. M\u00e1si haf\u00f0i komist yfir \u00ferj\u00fa g\u00f6mul h\u00fas vi\u00f0 Laugarvatn sem \u00e1tti a\u00f0 fara a\u00f0 henda.\u00a0 Hann f\u00e9kk \u00feau v\u00edst fyri l\u00edti\u00f0 sem ekkert gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 fjarl\u00e6gja \u00feau. \u00dar var\u00f0 a\u00f0 \u00e9g keypti eitt \u00feeirra og s\u00e1 M\u00e1si um flutning me\u00f0 hj\u00e1lp J\u00f3a \u00e1 Brekku \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 gera undirst\u00f6\u00f0ur me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 Bj\u00f6ssa smi\u00f0s. Allt miklir \u00f6\u00f0lingar. H\u00fasi\u00f0 var or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 l\u00fai\u00f0, en a\u00f0 mestu \u00f3f\u00fai\u00f0. Bj\u00f6ssi a\u00f0sto\u00f0a\u00f0i mig vi\u00f0 a\u00f0 einangra h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 ne\u00f0an og endurn\u00fdja nokkrar f\u00faasp\u00fdtur.\u00a0 \u00c1 me\u00f0an bj\u00f3 hann fr\u00edtt \u00e1 Geysi \u00ed bo\u00f0i M\u00e1sa. S\u00ed\u00f0ar sama sumar kom rafmagn og vatn og \u00e6vint\u00fdri\u00f0 var komi\u00f0 \u00e1 fullt. H\u00fasi\u00f0 skrapa\u00f0 og m\u00e1la\u00f0, pallur sm\u00ed\u00f0a\u00f0ur og trj\u00e1m planta\u00f0 \u00ed \u00fe\u00fasundav\u00eds.<\/p>\n<p>\u00cd nokkra \u00e1ratugi haf\u00f0i M\u00e1r barist vi\u00f0 v\u00e1gestinn Parkinson. Parkinson haf\u00f0i laumast a\u00f0 honum \u00f3v\u00f6rum og n\u00e1\u00f0i sm\u00e1m saman meiri og meiri t\u00f6kum \u00e1 l\u00edkama hans.\u00a0 M\u00e1r var \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum miki\u00f0 hraustmenni, \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari og gl\u00edmukappi.\u00a0 Hann gl\u00edmdi \u00fev\u00ed \u00f3hika\u00f0 vi\u00f0 Parkinson og haf\u00f0i oftast betur.\u00a0 Honum t\u00f3kst lengi vel a\u00f0 halda sj\u00fakd\u00f3mnum ni\u00f0ri me\u00f0 lyfjum og me\u00f0 raf\u00f6rvun \u00ed heila.\u00a0 \u00dev\u00ed mi\u00f0ur elti \u00f3heppnin M\u00e1sa og \u00edtreka\u00f0 lenti hann \u00ed sl\u00e6mum b\u00edl- og m\u00f3torhj\u00f3laslysum. M\u00e1r l\u00e9t \u00fe\u00f3 aldrei deigan s\u00edga og vafal\u00edti\u00f0 hefur hugurinn oft bori\u00f0 hann h\u00e1lfa lei\u00f0.\u00a0 Hann gafst \u00fe\u00f3 aldrei upp.\u00a0 \u00dea\u00f0 var ekki hans e\u00f0li.<\/p>\n<p>Sumt af \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 br\u00f6llu\u00f0um er best geymt \u00ed minningunni, \u00fev\u00ed lesandanum g\u00e6ti ofbo\u00f0i\u00f0 og hugsanlega fari\u00f0 \u00far l\u00edmingunum, e\u00f0a \u00feannig. \u00a0\u00dea\u00f0 er j\u00fa har\u00f0banna\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3fa a\u00f0 setja s\u00e1pu \u00ed hveri um mi\u00f0ja sumarn\u00f3tt og ekki m\u00e1 aka eins og glanni \u00e1 vel \u00f6\u00f0ru hundra\u00f0inu. \u00dea\u00f0 m\u00e1 ekki heldur&#8230; (usss, ekki meir&#8230;). M\u00e1r kunni ekki a\u00f0 hr\u00e6\u00f0ast. \u00a0\u00dea\u00f0 er kannski p\u00ednul\u00edti\u00f0 or\u00f0um auki\u00f0, en \u00feannig var M\u00e1si. Hann var einnig b\u00e6\u00f0i str\u00ed\u00f0inn og h\u00famoristi. Oft hvort tveggja \u00ed senn.\u00a0 Hann haf\u00f0i stundum gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 atast \u00ed f\u00f3lki og slapp \u00e9g ekki frekar en a\u00f0rir. Stundum vissi \u00e9g ekki hvort hann v\u00e6ri a\u00f0 tala vi\u00f0 mig \u00ed fullri alv\u00f6ru, e\u00f0a bara a\u00f0 gantast.\u00a0 \u00dea\u00f0 var alltaf stutt \u00ed str\u00e1ksskapinn og prakkarastrikin&#8230;\u00a0 \u00c9g \u00feykist vita a\u00f0 M\u00e1si fyrirgefi \u00f3tuktarskapinn \u00ed m\u00e9r a\u00f0 lj\u00f3stra \u00feessu upp og hafi bara gaman af. \u00a0Eitt er v\u00edst,\u00a0 \u00fea\u00f0 dugir ekki a\u00f0 skrifa einhverja lognmollu \u00ed eftirm\u00e6lum um sveitarh\u00f6f\u00f0ingjann og hetjuna M\u00e1 Sigur\u00f0sson. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri ekki hans st\u00edll.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Sigr\u00fan kve\u00f0jum M\u00e1sa vin okkar, og vottum eiginkonu hans Sigr\u00ed\u00f0i, og b\u00f6rnum \u00feeirra M\u00e1bil, Sigur\u00f0i og Vihj\u00e1lmi \u00e1samt fj\u00f6lskyldum og vinum sam\u00fa\u00f0 okkar. Einnig \u00feeim fj\u00f6lm\u00f6rgu sem \u00feekktu M\u00e1 Sigur\u00f0sson. \u00a0 Minningin um M\u00e1sa mun lifa \u00ed hj\u00f6rtum okkar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<div id=\"attachment_1445\" style=\"width: 710px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><img aria-describedby=\"caption-attachment-1445\" loading=\"lazy\" class=\"size-large wp-image-1445\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/107-0717_IMG-1024x827.jpg\" alt=\"\" width=\"700\" height=\"565\" srcset=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/107-0717_IMG-1024x827.jpg 1024w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/107-0717_IMG-300x242.jpg 300w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/107-0717_IMG-768x620.jpg 768w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/107-0717_IMG.jpg 1112w\" sizes=\"(max-width: 700px) 100vw, 700px\" \/><p id=\"caption-attachment-1445\" class=\"wp-caption-text\">M\u00e1r og m\u00f3torhj\u00f3li\u00f0.<\/p><\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<div id=\"attachment_1428\" style=\"width: 710px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img aria-describedby=\"caption-attachment-1428\" loading=\"lazy\" class=\"size-large wp-image-1428\" src=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/135-3562_IMG-1024x768.jpg\" alt=\"\" width=\"700\" height=\"525\" srcset=\"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/135-3562_IMG-1024x768.jpg 1024w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/135-3562_IMG-300x225.jpg 300w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/135-3562_IMG-768x576.jpg 768w, http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-content\/uploads\/2017\/05\/135-3562_IMG.jpg 1600w\" sizes=\"(max-width: 700px) 100vw, 700px\" \/><p id=\"caption-attachment-1428\" class=\"wp-caption-text\">M\u00e1r var mikill \u00e1hugama\u00f0ur um allt sem sn\u00fdr a\u00f0 t\u00e6kni. M\u00f3torhj\u00f3l voru \u00fear efst \u00e1 bla\u00f0i, en eitt sinn var\u00f0 hann s\u00e9r \u00fati um m\u00f3torsvifdreka og dreymdi um a\u00f0 flj\u00faga um loftin bl\u00e1, frj\u00e1ls sem fuglinn flj\u00fagandi. \u00c1 Kj\u00f3asta\u00f0at\u00faninu bruna\u00f0i hann fram og aftur daginn sem myndin var tekin, og m\u00e1tti vel sj\u00e1 undir hj\u00f3lin. Hann flaug h\u00e6rra en Howard Huges ger\u00f0i \u00e1ri\u00f0 1947 \u00feegar hann flaug heimsins st\u00e6rstu flugv\u00e9l, Spruce Goose, \u00ed fyrsta og eina skipti\u00f0, a\u00f0 minnsta kosti mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 st\u00e6r\u00f0arhlutf\u00f6ll flugv\u00e9lanna. \u00a0M\u00e1r n\u00e1\u00f0i \u00fearna a\u00f0 flj\u00faga sinni eigin v\u00e9l sj\u00e1lfur.<\/p><\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h2><\/h2>\n<h2>\u00cdtarefni:<\/h2>\n<p>Vi\u00f0tal vi\u00f0 M\u00e1 Sigur\u00f0sson \u00ed m\u00e1lgagni SAF, Samtaka fer\u00f0s\u00fej\u00f3nustunnar: <a href=\"http:\/\/www.saf.is\/wp-content\/uploads\/saf-marsigurdsson_nyju.pdf\"><strong>St\u00f3rhugar<\/strong><\/a><\/p>\n<p>Morgunbla\u00f0i\u00f0 2003: <a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/greinasafn\/grein\/731426\/\"><strong>Hlusta\u00f0 \u00e1 Geysi<\/strong><\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">M\u00e1r Sigur\u00f0sson f\u00e6ddist \u00e1 Geysi 28. apr\u00edl 1945. Hann l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu 3. ma\u00ed 2017.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">Foreldrar M\u00e1s voru Sigr\u00fan Bjarnad\u00f3ttir fr\u00e1 B\u00f3li \u00ed Biskupstungum, f. 7. n\u00f3vember 1903, d. 10. \u00e1g\u00fast 1979, og Sigur\u00f0ur Greipsson fr\u00e1 Haukadal \u00ed Biskupstungum, f. 22. \u00e1g\u00fast 1897, d. 19. j\u00fal\u00ed 1985.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">Systkini M\u00e1s eru: Bjarni, f. 1933, d. 1936, Bjarni, f. 1935, Katr\u00edn, f. 1937, d. 1938, Greipur, f. 1938, d. 1990, \u00de\u00f3rir, f. 1939.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">Eiginkona M\u00e1s er Sigr\u00ed\u00f0ur Vilhj\u00e1lmsd\u00f3ttir, f. 1. september 1951 \u00ed Sandger\u00f0i. Foreldrar hennar voru Gr\u00f3a Axelsd\u00f3ttir, f. 21. okt\u00f3ber 1924, d. 9. apr\u00edl 2004, og Vilhj\u00e1lmur \u00c1smundsson, f. 20. ma\u00ed 1926, d. 4. jan\u00faar 1960 fr\u00e1 Kvern\u00e1, Grundarfir\u00f0i.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">B\u00f6rn M\u00e1s og Sigr\u00ed\u00f0ar eru:M\u00e1bil Gr\u00f3a, f. 9. jan\u00faar 1970. D\u00e6tur hennar eru Sigr\u00ed\u00f0ur Alma, f. 1996, og Salka Krist\u00edn, f. 2004. Stj\u00fapb\u00f6rn hennar eru Unnur, f. 1988, og Alex Baldvin, f. 1994.Vilhj\u00e1lmur, f. 17. \u00e1g\u00fast 1976. Sigur\u00f0ur, f. 13. mars 1976. Maki hans er El\u00edn Svafa Thoroddsen, f. 14. jan\u00faar 1981.D\u00f3ttir Sigur\u00f0ar og Dr\u00edfu Bjarkar Linnet Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur er Sara Jasm\u00edn, f. 2001.D\u00e6tur Sigur\u00f0ar og El\u00ednar eru Saga Natal\u00eda, f. 2011, Emel\u00eda \u00cdsold, f. 2014, og Anton\u00eda El\u00edn, f. 2015.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">M\u00e1r \u00f3lst upp \u00e1 Geysi \u00ed Haukdal. Foreldrar hans r\u00e1ku \u00ed\u00fer\u00f3ttask\u00f3lann \u00ed Haukadal \u00ed 43 \u00e1r en \u00e6ttfa\u00f0ir Haukd\u00e6la, Teitur \u00cdsleifsson, stofna\u00f0i fyrsta l\u00e6rd\u00f3mssetur \u00cdslands. Fa\u00f0ir M\u00e1s var \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00f6mu\u00f0ur og gl\u00edmukappi, stunda\u00f0i sau\u00f0fj\u00e1rb\u00faskap \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, n\u00fdtti sk\u00f3lah\u00fasi\u00f0 fyrir fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu \u00e1 sumrin, stunda\u00f0i fer\u00f0amannalei\u00f0s\u00f6gn og bygg\u00f0i upp a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00e1 hverasv\u00e6\u00f0inu. M\u00e1r \u00fatskrifa\u00f0ist 1964 fr\u00e1 \u00cd\u00fer\u00f3ttask\u00f3la \u00cdslands \u00e1 Laugavatni og s\u00f3tti svo frekara n\u00e1m \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 danska h\u00e1sk\u00f3lann Danmarks H\u00f8jskole for Legems\u00f8velser og \u00fatskrifa\u00f0ist \u00fea\u00f0an 1968. Fr\u00e1 \u00fatskrift starfa\u00f0i hann sem \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari \u00e1 H\u00f3lum \u00ed Hjaltadal, Stykkish\u00f3lmi, F\u00e1skr\u00fa\u00f0sfir\u00f0i, Reykjanesi vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap og farkennari \u00e1 vegum HSK. \u00c1ri\u00f0 1969 h\u00f3f hann starf sem kennari vi\u00f0 grunnsk\u00f3lann \u00e1 Laugalandi \u00ed Holtum, Rang\u00e1rvallas\u00fdslu, og starfa\u00f0i \u00fear \u00ed 25 \u00e1r. M\u00e1r h\u00f3f uppbyggingu \u00e1 fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 Geysi \u00ed Haukadal \u00e1ri\u00f0 1972 og helga\u00f0i sig alfari\u00f0 uppbyggingunni vi\u00f0 fj\u00f6lskyldufyrirt\u00e6ki\u00f0 H\u00f3tel Geysi fr\u00e1 \u00e1rinu 1993 og var mikill frumkv\u00f6\u00f0ull \u00e1 svi\u00f0i fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"color: #808000;\">\u00a0M\u00e1r hlaut riddarakross Hinnar \u00edslensku f\u00e1lkaor\u00f0u \u00e1ri\u00f0 2005 fyrir frumkv\u00e6\u00f0i \u00ed uppbyggingu fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu.<\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>St\u00f3rhugar. Samt\u00f6k fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustunnar <a href=\"http:\/\/www.saf.is\/wp-content\/uploads\/saf-marsigurdsson_nyju.pdf\">r\u00e6ddu vi\u00f0<\/a>\u00a0 M\u00e1 Sigur\u00f0sson.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<pre><span style=\"color: #808080;\">Andlitsmyndirnar tv\u00e6r af M\u00e1sa foru fengnar a\u00f0 l\u00e1ni af netinu \u00e1n \u00feess a\u00f0 bi\u00f0ja um leyfi. \r\nVona a\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrirgefist.<\/span><\/pre>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&nbsp; N\u00fa er hann M\u00e1r vinur minn allur. Hann l\u00e9st 3ja ma\u00ed s.l. M\u00e1sa hef \u00e9g \u00feekkt \u00ed sex \u00e1ratugi og h\u00e1lfan betur.\u00a0 Kannski r\u00famlega sj\u00f6, \u00fev\u00ed M\u00e1si var tveim d\u00f6gum eldri en \u00e9g og haf\u00f0i hann \u00fea\u00f0 eitt sinn \u00e1 or\u00f0i a\u00f0 hann hafi s\u00e9\u00f0 mig koma h\u00e1grenjandi \u00ed heiminn \u00e1 f\u00e6\u00f0ingadeildinni og hlegi\u00f0&hellip;<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":1408,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":[],"categories":[6],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1407"}],"collection":[{"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1407"}],"version-history":[{"count":44,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1407\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1902,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1407\/revisions\/1902"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1408"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1407"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1407"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/www.agust.net\/wordpress\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1407"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}