Er aldingarðurinn Eden fundinn í Göbekli Tepe? 11.000 ára fornminjar…

 (Af Moggabloggi 3. maí 2009)

Ótrúlegt að þessar minjar skuli vera 11.000 ára gamlar!

Fundist  hafa ótrúlega vel varðveittar rúmlega 11.000  gamlar fornminjar í Tyrklandi sem hafa valdið byltingu í hugmyndum okkar um þróun menningar. Sumir hafa tengt staðinn við munnmælasögur um Paradís, en staðurinn kemur heim og saman við frásagnir í Biblíunni. Fornminjarnar eru sem sagt frá um 9.000 f.Kr. Jafnvel eldri.
Til samanburðar eru pýramídarnir í Giza frá um  2.500 f.Kr. og Stonehenge frá um 3.000 f.Kr. Fornminjarnar í Göbekli Tepe eru frá þeim tíma er ísöldinni miklu var að ljúka, þ.e. frá steinöld áður en menn höfðu fundið upp hjólið.  Hvorki meira né minna en 7.000 árum eldra en pýramídarnir! Þarna hefur væntanlega verið mikið hof í miðjum aldingarði, þó svo að nú sé þarna gróðurlaust að mestu.

Horft yfir hluta svæðisins

Eiga munnmælasögurnar um aldingarðinnn Eden uppruna sinn hér þar sem áður voru ósánir akrar og mikill gróður?  Sumir telja að svo geti verið og benda á að staðsetningin sé “rétt”. Staðurinn er milli fljótanna Efrat og Tígris.
Í fyrstu Mósebók segir um aldingarðinn:
“Drottinn Guð plantaði aldingarð í Eden langt austur frá og setti þar manninn, sem hann hafði myndað. Og Drottinn Guð lét spretta af jörðinni alls konar tré, girnileg á að líta og góð af að eta, ásamt lífsins tré í miðjum garðinum og skilningstré góðs og ills.”
Síðar fylgir nánari staðsetning á garðinum sem tengist fjórum stórfljótum:

“Fljót rann frá Eden til að vökva aldingarðinn, og þaðan kvíslaðist það og varð að fjórum stórám. Hin fyrsta heitir Píson; hún fellur um allt landið Havíla, þar sem gullið fæst.  Gull þess lands er hreint. Þar er bedólat og ónyxsteinn Önnur stóráin heitir Gíhon. Hún fellur um allt Kúsland. Þriðja stóráin heitir Kíddekel (Tígris). Hún fellur fyrir vestan Assýríu. Fjórða stóráin er Efrat. Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann í aldingarðinn Eden til að yrkja hann og gæta hans….”

Auðvitað eru þetta bara vangaveltur, en getur verið að munnmælasögur um aldingarð hafi lifað mann fram af manni um aldir alda? Þarna var mjög frjósamt og gnægð matar meðan menn stunduðu veiðar. Síðan reistu menn hof og fluttu saman í þorp og fóru að stunda landbúnað. Felldu tré og runna til að auðveldara væri að yrkja jörðina. Uppblástur hófst og Paradís var ekki lengur til staðar nema í munnmælum.

Klaus Schmidt, fornleifafræðingurinn sem stjórnar uppgreftinum, orðaði þetta eitthvað á þessa leið: “Þetta er ekki aldingarðurinn Eden, en hugsanlega hofið í garðinum”.
Við uppgröftinn hefur komið í ljós að menn hafa lagt á sig ómælda vinnu fyrir 10.000 árum til að hylja þessar minjar með sandi og jarðvegi. Hvers vegna? Fjölmargar spurningar hafa vaknað og hugsanlega verður þeim aldrei svarað.
Getur verið að hér hafi verið Paradís jarðar meðan Ísland var hulið ísaldarjökli og úrkoma þá næg til að viðhalda gróðri og dýralífi á þessum slóðum? Síðan eftir að ísöld lauk fór að draga úr úrkomu, landið þornaði upp og gróður hvarf? Bloggarunum datt þetta sísona í hug…

Göbekli Tepe er syðst í Tyrklandi um 10 km frá bænum Urfa.

Takið eftir hve myndirnar eru vel gerðar og vel varðveittar. Svo virðist sem hofið hafi verið viljandi grafið í sand fyrir 10.000 árum. Hvers vegna vita menn ekki.

Það er merkilegt til þess að hugsa að þetta hefur verið unnið með steináhöldum, því málma þekktu menn auðvitað ekki á steinöld.

Þannig hugsa menn sér að hofið hafi getað litið út. Aðeins er búið að grafa upp lítinn hluta svæðisins, en á yfirborðinu má sjá móta fyrir fleiri hringjum á hæðinni. Með jarðsjá hafa menn fundið ýmislegt neðanjarðar sem á eftir að grafa upp.

Er þetta elsta myndastytta í heimi? Er hún  13.500 ára gömul?

Það duga ekki nein vettlingatök á svona steina.  Það eru um 20 svona 6 metra háar T-laga súlur, og vegur hver þeirra um 20 tonn. Þær voru reistar fyrir meira en 11.000 árum.

Það var þessi gamli Kúrdi sem fann undarlega lagaðan stein sem varð kveikjan að uppgreftinum sem hófst 1994. Nánast ekkert sást á yfirborðinu og komu fornminjarnar ekki í ljós fyrr en farið var að grafa.

Þjóðverjinn Klaus Schmidt hefur helgað sig uppgreftinum og stjórnar honum.

 

 

 


Ítarefni:

http://interestingengineering.com/this-temple-still-astounds-archaeologists-12000-years-later/

Wikipedia: Göbekli Tepe

Smthsonian Magazine: Gobekli Tebe: The World's First Temple? 

Tom Knox í Daily Mail: Do these mysterious stones mark the site of the Garden of Eden?

Professor A. Cihat: History of civilization began in Urfa Began in Urfa (Gobekli, Turkey).
13,500 Year Old Statue Amazes Archeologists Throughout The World.

Gobekli Tepe: Where Civilization Began?

Archaeology Magazine. Sandra Scham:   Turkey’s 12,000-year-old stone circles were the spiritual center of a nomadic people

 

 

Göbekli Tepe þýðir á Tyrknesu: Upphækkaður nafli, eða naflahóll. Nafli heimsins?
Hve gömul er “menningin”?
Hvernig hjuggu menn til steinana og listaverkin á steinöld, án málmverkfæra?
Hvers vegna lögðu menn svona gríðarlega vinnu í að fela mannvirkin fyrir 10.000 árum?
 Ert þú ekki furðu lostinn?
Halo